Fotbolti.net
03.08.14 - 19:00
Jóhann Ingi Hafþórsson

Valbuena til Dinamo Moscow (Staðfest)

Mathieu Valbuena er einnig í franska landsliðinu.

Mathieu Valbuena er einnig í franska landsliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Franski landsliðsmaðurinn Mathieu Valbuena er farinn til Dinamo Moscow í Rússlandi frá Olympique de Marseille í heima landinu.
Valbuena átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Marsille og ákváð liðið því að selja hann. Valbuena er 29 ára og búinn að vera í átta ár hjá liðinu.

Það var áhugi fyrir leikmanninum í ensku úrvalsdeildinni og voru lið eins og QPR nefnt til sögunnar.

Talið er að kaupverðið sé um 7 milljónir evra.

Rússneska liðið eru nú þegar búnir að fá Alexander Buttner frá Manchester United og William Vainqueur frá Standard í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.