Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United er nálægt því að ganga frá samningum við Jadon Sancho, leikmann Borussia Dortmund, en þetta kemur fram á Sky Sports í dag.
Man Utd hefur verið í viðræðum við Dortmund um kaup á Sancho síðustu vikur en þau eru afar nálægt því að ná samkomulagi um verð á enska landsliðsmanninum.
Dortmund vill um það bil 108 milljónir punda fyrir Sancho en Man Utd fær að dreifa greiðslunum.
Sky Sports greindi frá því fyrr í dag og nú greinir miðillinn frá því að Man Utd sé nálægt því að ganga frá samningum við Sancho.
Hann mun skrifa undir fimm ára samning hjá félaginu en þessi magnaði leikmaður gerði 17 mörk og lagði upp 17 í 32 leikjum í þýsku deildinni á síðustu leiktíð.
Athugasemdir