Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. ágúst 2021 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Á ekki von á öðru en að hann verði klár í slaginn"
Alexander Helgi
Alexander Helgi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alexander Helgi Sigurðarson, leikmaður Breiðabliks, meiddist í gær þegar Blikar mættu Víkingi í Pepsi Max-deildinni.

Breiðablik vann leikinn 4-0 á Kópavogsvelli en Alexander, sem var í byrjunarliði Breiðabliks, fór af velli undir lok fyrri hálfleiks.

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  0 Víkingur R.

„Ja hérna hér þetta lítur ekki vel út en Alexander Helgi virðist vera að ljúka leik, sýndist hann vera halda um mjöðmina á sér," skrifaði Arnar Laufdal Arnarsson, sem textalýsti leiknum, á 42. mínútu.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var spurður út í stöðuna á Alexander Helga í dag. Breiðablik á næst leik gegn Aberdeen á fimmtudag.

„Hann er ágætur, óhaltur og ég á ekki von á öðru en að hann verði klár í slaginn," sagði Óskar.
Athugasemdir
banner
banner
banner