Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 03. ágúst 2021 12:45
Elvar Geir Magnússon
Arsenal gerir tilboð í Maddison - Leicester hyggst halda honum
Mynd: EPA
Enskir fjölmiðlar segja að Arsenal hafi gert tilboð í James Maddison, sóknarmiðjumann Leicester.

Tilboðið byggist á því að Leicester fái leikmann frá Arsenal en þar er Joe Willock möguleiki og einnig Reiss Nelson.

Football.london segir að viðræður gangi mjög hægt þar sem Leicester hyggst halda Maddison í sínum röðum. Félagið hlusti ekki á tilboð undir 60 milljónum punda.

Maddison er 24 ára og er lykilmaður hjá Leicester en liðið varð bikarmeistari á síðasta tímabili. Hann kom frá Norwich 2018.
Athugasemdir
banner
banner