Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 03. ágúst 2021 21:51
Brynjar Ingi Erluson
Chelsea undirbýr nýtt tilboð í Lukaku
Romelu Lukaku gæti farið til Chelsea
Romelu Lukaku gæti farið til Chelsea
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er að undirbúa nýtt tilboð í belgíska framherjann Romelu Lukaku en það mun hljóða upp á 120 til 130 milljónir evra samkvæmt Fabrizio Romano.

Chelsea lagði fram 100 milljón evra tilboð í Lukaku og var Marcos Alonso með í dílnum en Inter hafnaði því.

Inter er í fjárhagsvandræðum og þarf að selja leikmenn en Lukaku er sagður ósnertanlegur samkvæmt Guiseppe Marotta, framkvæmdastjóra Inter.

Chelsea mun þó halda áfram í viðræðum við Inter og er ákveðið í að fá framherjann. Félagið undirbýr nú nýtt tilboð sem hljóðar upp á 120 til 130 milljónir evra.

Lukaku myndi fá langtímasamning og 230 þúsund pund í vikulaun ef það verður af skiptunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner