Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. ágúst 2021 07:00
Victor Pálsson
Lyon gæti leitað til Chelsea
Mynd: Getty Images
Lyon í Frakklandi hefur áhuga á bakverðinum Emerson Palmieri sem spilar með Evrópumeisturum Chelsea á Englandi.

Nokkrir miðlar í Frakklandi greina frá þessu en Emerson var ekki fyrsti maður á blað hjá Thomas Tuchel hjá Chelsea á síðustu leiktíð.

Chelsea er talið vilja um 20 milljónir evra fyrir Emerson sem var hluti af ítalska landsliðinu sem vann EM í sumar.

Ólíklegt er að bakvörðurinn fái mikinn spiltíma með Chelsea á næstu leiktíð en enska deildin hefst 14. ágúst næstkomandi.

Napoli hefur áður sýnt Emerson áhuga en var ekki tilbúið að borga verðmiða leikmannsins.

Lyon hafði sýnt Patrick van Aanholt áhuga fyrr í sumar en hann ákvað að ganga í raðir Galatasaray í Tyrklandi á frjálsri sölu.
Athugasemdir
banner
banner