03.09.13 - 18:01
Alexander Freyr Tamimi
Janko í Manchester United (Staðfest)

Saidy Janko.

Mynd: FC Zurich

Saidy Janko.

Mynd: FC Zurich
Manchester United hefur gengið frá kaupunum á 17 ára hægri bakverði að nafni Saidy Janko frá FC Zurich.
United staðfesti þessi kaup í dag og er hann þriðji leikmaðurinn sem kemur til félagsins í sumar á eftir þeim Guillermo Varela og Marouane Fellaini.
Félagið greindi frá því að Janko hefði heillað fulltrúa þess fyrr á árinu á „Blue Stars“ mótinu þar sem hann spilaði gegn United.
Hann kom þá einnig á reynslu til félagsins og mun hann byrja að spila með U18 liðinu.
Janko verður líklega fyrst og fremst hugsaður sem bakvörður, en hann er þó sagður geta leyst ýmsar stöður af hólmi.
Talið er að Manchester United hafi borgað 700.000 pund fyrir leikmanninn, en kaupverðið var þó ekki gefið upp.