Fotbolti.net
03.09.14 - 16:21
Magnús Már Einarsson

Andy Johnson til Crystal Palace (Staðfest)

Faceplant: Andy Johnson í leik með Crystal Palace á sínum tíma.

Faceplant: Andy Johnson í leik með Crystal Palace á sínum tíma.

Canon

Mynd: Getty Images

Crystal Palace hefur fengið framherjann Andy Johnson í sínar raðir.

Johnson hefur verið án félags síðan samningur hans hjá QPR rann út í sumar og því getur hann gengið til liðs við Palace þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé búinn að loka.
Hinn 33 ára gamli Johnson er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Crystal Palace en hann skoraði 85 mörk í 160 leikjum með liðinu frá 2002 til 2006.

Auk þess að spila með Crystal Palace þá mun Johnson kom að þjálfun unglinga hjá félaginu.

,,Ég vil þakka stjóranum og formanninum fyrir þetta tækifæri og ég hlakka til að hjálpa félaginu í ensku úrvalsdeildinni,\" sagði Johnson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.