03.09.20 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Augsburg missir Philipp Max til PSV (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Augsburg er búið að selja vinstri bakvörðinn öfluga Philipp Max yfir til PSV Eindhoven í Hollandi.
Þetta er gífurlega mikill liðsstyrkur fyrir PSV enda hefur Max mikla reynslu úr þýska boltanum. Á fimm árum hjá Augsburg spilaði Max 146 leiki og skoraði 14 mörk.
Max spilaði yfirleitt sem bakvörður en var einnig notaður á vinstri kanti og á vængnum í þriggja manna sóknarlínu, með Alfreð Finnbogason fremstan.
PSV er talið greiða 8 milljónir evra fyrir Max, sem var metinn á 20 milljónir fyrir Covid-19 faraldurinn.
Max á þrjá leiki að baki fyrir þýska Ólympíulandsliðið, sem er skipað leikmönnum 23 ára og yngri.

1⃣5⃣6⃣ Pflichtspiele für Rot-Grün-Weiß - 1⃣5⃣6⃣ Mal MAXimaler Einsatz! 🙏 DANKE, Philipp! 👏 #FCA #Max pic.twitter.com/hPwgRqADf3
— FC Augsburg (@FCAugsburg) September 2, 2020