03.09.20 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ossama Ashley til West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ossama Ashley er búinn að skrifa undir eins árs samning við West Ham en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu eftir að hafa runnið út á samningi hjá AFC Wimbledon.
Ashley er tvítugur miðjumaður sem fór til West Ham á reynslu í ágúst og hreif þjálfarateymi félagsins.
Hann fær eins árs samning með möguleika á öðru samningsári ef vel gengur.
Ashley fékk ekki tækifæri hjá Wimbledon og spilaði aðeins einn leik fyrir félagið á þremur árum.
Ashley, sem var partur af unglingaliði Fulham í eitt ár, spilaði fyrir utandeildarlið Billericay Town FC á síðustu leiktíð.