Fotbolti.net
03.10.15 - 16:05
Alexander Freyr Tamimi

Jói Harðar hættir með ÍBV (Staðfest)

Jóhannes Harðarson snýr ekki aftur til starfa hjá ÍBV.

Jóhannes Harðarson snýr ekki aftur til starfa hjá ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Þór Harðarson mun ekki snúa aftur til starfa hjá ÍBV, en hann var ráðinn þjálfari liðsins fyrir þetta tímabil. Frá þessu greindi félagið í fréttatilkynningu rétt í þessu.

Jóhannes hætti með lið ÍBV af persónulegum ástæðum á miðju tímabili og tók Ásmundur Arnarsson við starfi hans. Hjálpaði sá síðarnefndi Eyjamönnum að bjarga sér frá falli úr Pepsi-deildinni.
„Stjórn knattspyrnudeildar ÍBV þakkar Jóa Harðar fyrir góð störf í þágu félagsins og sérstaklega góða viðkynningu frá upphafi samstarfsins. Einnig er fjölskyldu Jóa Harðar óskað velfarnaðar með von um gæfu og gengi um alla framtíð,\" segir í tilkynnignu frá ÍBV.



Þá er ekki útilokað að leiðir Jóhannesar og ÍBV muni liggja saman að nýju, en frekari frétta af þjálfaramálum er að vænta á næstu vikum. Félagið hefur sjálft sagt að fyrsti kostur sé að Ásmundur muni áfram þjálfa liðið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.