Fotbolti.net
03.10.21 - 10:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Xisco Munoz rekinn frá Watford (Staðfest)

Xisco Munoz rekinn frá Watford (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski stjórinn Xisco Munoz hefur verið rekinn sem stjóri Watford. Þessi spænski stjóri var aðeins tæpa 10 mánuði undir stjórn félagsins.
Watford er með 7 stig eftir fyrstu sjö leikina í ensku úrvalsdeildinni. Síðasti leikur Xisco var 1-0 tap gegn Leeds í gær.

Spánverjinn tók við af Vladimir Ivic í desember 2020 er liðið var í Championship deildinni og vann þátttökurétt í Úrvalsdeildinni í ár.

Í yfirlýsingu sem félagið gaf út segir: „Stjórninni fannst frammistaðan undanfarið slæm á þeim tíma sem samheldnin í liðinu ætti að vera á uppleið. Félagið mun alltaf vera þakklátt Xisco fyrir að vinna sæti í Úrvalsdeildinni og við óskum honum góðs gengis á ferlinum í framtíðinni. Félagið mun ekki tjá sig frekar þar til yfirvofandi tilkynning um nýjan þjálfara liggur fyrir."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.