Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 03. október 2022 11:30
Auglýsingar
Við skálum í ískaldri mjólk fyrir góðu Mjólkurbikarsumri
Mynd: MS

Fótboltasumarið í Mjólkurbikar karla og kvenna gekk með eindæmum vel og óhætt að segja að keppnin hafi einkennst af spennandi leikjum allt frá fyrsta degi.

Eftir harða keppni stóðu Valskonur uppi sem Mjólkurbikarmeistarar kvenna og Víkingur tryggðu sér titilinn hjá körlunum. Mjólkurbikarinn bauð upp á sannkallaða veislu fyrir áhorfendur þar sem öflugt knattspyrnufólk gaf allt sitt hverja einustu mínútu, í hverjum einasta leik.


Samstarf Mjólkursamsölunnar, KSÍ og RÚV gekk sérstaklega vel enda lögðust allir á eitt og markmiðið var að gera góða keppni enn betri sem við erum sammála um að hafi tekist. Markmið MS með stuðningi við fótboltann er m.a. að auka vitund um mjólk og hollustu hennar og tengja fyrirtækið við jákvætt og uppbyggjandi íþróttastarf í landinu.

„Það hefur verið virkilega aðdáunarvert að fylgjast með knattspyrnufólki taka þátt í Mjólkurbikarnum undanfarin ár og gaman að taka þátt í verkefni sem teygir anga sína um land allt. Hápunkturinn er svo auðvitað að krýna nýja Mjólkurbikarmeistara í lok hvers sumars og taka þátt í gleðinni sem fylgir þegar liðin lyfta hinum eftirsótta Mjólkurbikar í leikslok,“ segir Halldóra Arnardóttir, markaðsstjóri fersksvara hjá MS.

Við óskum Mjólkurbikarmeisturum ársins innilega til hamingju með titlana og teljum niður dagana þar til boltinn byrjar að rúlla á ný.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner