Fotbolti.net
03.10.26 - 22:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu þegar það sauð upp úr á fréttamannafundi Heimis

Sjáðu þegar það sauð upp úr á fréttamannafundi Heimis
Canon

Mynd: EPA

Það sauð upp úr á fréttamannafundi Heimis Hallgrímssonar, landsliðsþjálfara Írlands, í dag fyrir leik liðsins gegn Ísrael á morgun.

Það hefur mikið gengið á undanfarna daga og það ríkir mikil reiði í Írlandi að þessi leikur muni fara fram.
Stuðningsmenn köstuðu tennisboltum með mynd af palestínska fánanum á völlinn í fyrri leik liðanna sem Írland vann 3-0. Markvörðurinn Gavin Bazunu dró sig úr hópnum fyrir leikinn og Heimir ákvað að spila ekki Finn Azaz sem á ættir sínar að reka til Ísrael.

Ísraelskur blaðamaður hélt því fram að írskir leikmenn hafi beitt ísraelskum leikmönnum kynþáttaníði. Hann spurði Heimi út í það og fjölmiðlafulltrúi Írlands steig þá inn í og sagði að það væri ósatt. Hann og Heimir gengu út í kjölfarið.

Ísraelinn gaf sig ekki og sagði að ísraelsku leikmennirnir væru ekki að ljúga.

„Þetta er fréttamannafundur, okkur var boðið hingað til að spyrja spurninga," sagði hann.

Sjáðu þegar það sauð upp úr á fréttamannafundi Heimis
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.