Fotbolti.net
03.11.13 - 13:41
Magnús Már Einarsson

Tryggvi Sveinn í Fram (Staðfest)

Tryggvi Sveinn í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Tryggvi Sveinn Bjarnason hefur gengið til liðs við Fram en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.

Hann hefur leikið með Stjörnunni undanfarin ár en í vikunni varð ljóst að hann myndi yfirgefa herbúðir félagsins.
,,Tryggvi er öflugur leikmaður og mikill karkater sem verður án efa einn af burðarásunum í okkar liði,\" sagði Bjarni Guðjónsson þjálfari Fram.

Tryggvi hefur leikið 203 leiki í deild og bikar með KR, ÍBV og Stjörnunni og skorað í þeim 17 mörk. Tryggvi á að baki 9 landsleiki með U21, 3 með U19 og 9 með U17.

Hinn þrítugi Tryggvi er níundi leikmaðurinn sem Bjarni fær síðan hann tók við Fram en allir hinir leikmennirnir eru 24 ára eða yngri.

Hins vegar hafa tíu leikmenn horfið á braut hjá Fram síðan að tímabilinu lauk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.