03.11.15 - 14:48
Magnús Már Einarsson
Atli Fannar í Fram (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn Atli Fannar Jónsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fram.
Atli rifti á dögunum samningi sínum við Víking R. en hann fékk fá tækifæri þar.
Síðari hluta sumars var Atli í láni hjá Fram þar sem hann skoraði fimm mörk í átta leikjum í 1. deildinni.

„Atli er mikill liðsmaður og hefur metnað til að ná langt í fótbolta, við FRAMarar fögnum því að hafa fengið þennan öfluga leikmann í okkar raðir og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á komandi árum,\" segir á heimasíðu Fram.
Hinn tvítugi Atli Fannar ólst upp hjá Breiðabliki en lék með ÍBV í eitt ár áður en hann fór til Víkings í fyrra.
Atli Fannar á að baki 9 landsleiki fyrir hönd Íslands í landsliðum U17 og U19 og gerði í þeim leikjum 2 mörk.