03.11.21 - 22:51
Brynjar Ingi Erluson
Hildur Karítas í Aftureldingu (Staðfest)

Hildur Karítas Gunnarsdóttir gerði tveggja ára samning við Aftureldingu

Mynd: Afturelding

Hildur Karítas Gunnarsdóttir er gengin í raðir Aftureldingar frá Haukum en hún gerir tveggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aftureldingu í kvöld.
Hildur er fædd árið 1998 og var fyrirliði Hauka í sumar þar sem hún gerði átta mörk í átján leikjum í Lengjudeildinni.
Hún er uppalin í Val en gekk í raðir Hauka árið 2018 og hefur spilað fjögur tímabil með liðinu.
Hildur er nú búin að semja við Aftureldingu til næstu tveggja ára en liðið tryggði sér sæti í efstu deild á nýafstöðnu tímabili.
„Það er virkilega mikil ánægja meðal okkar þjálfara að tryggja okkur þjónustu Hildar næstu tvö tímabil hið minnsta. Hildur er ungur og spennandi leikmaður sem við höfum fylgst með síðustu ár þar sem hún hefur verið iðin við að skora gegn okkur í Lengjudeildinni. Nú er hún komin yfir í Mosfellsbæinn og hlökkum við til að byrja vinna með henni, stelpurnar í liðinu hafa tekið henni rosalega vel og fellur hún vel inn í okkar leikmannahóp. Hildur er leikmaður sem passar vel inn í okkar leikstíl og verður spennandi að sjá hana taka skrefið með okkur í efstu deild," sögðu þeir Alexander Aron Davorsson og Bjarki Már Sverrisson, þjálfarar Aftureldingar.