Fotbolti.net
03.11.21 - 10:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rúnar Gissurar í Keflavík (Staðfest)

Rúnar í leik með Reyni í sumar.

Rúnar í leik með Reyni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Keflavík tilkynnti í dag að Rúnar Gissuararson væri genginn í raðir félagsins. Rúnar kemur til Keflavík frá Reyni Sandgerði.

Markvörðurinn gerir samning út næsta tímabil. Á sínum ferli hefur hann leikið með Víði Garði, Reyni, Þrótti Vogum og Njarðvík og býr yfir talsverðri reynslu.

Hann mun veita þeim Sindra Kristni Ólafssyni, Þresti Inga Smárasyni og Helga Bergmanni Hermannssyni aukna samkeppni.

Rúnar lék undir stjórn Haralds Freys Guðmundssonar hjá Reyni í sumar en Haraldur tók við sem aðstoðarþjálfari Keflavíkur á dögunum.

Rúnar verður 35 ára seinna í mánuðinum og var ekki langt frá því að komast á bekkinn í lið ársins í 2. deild í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.