Fotbolti.net
03.12.13 - 10:35
Magnús Már Einarsson

Alexander Veigar og Ingólfur Sig í Þrótt (Staðfest)

Hallur framlengir

Frá vinstri: Jón Kaldal, formaður stjórnar knattspyrnudeildar Þróttar, Hallur Hallson, Ingólfur Sigurðsson, Alexander Veigar Þórarinsson og Gregg Ryder , þjálfari meistaraflokks.

Frá vinstri: Jón Kaldal, formaður stjórnar knattspyrnudeildar Þróttar, Hallur Hallson, Ingólfur Sigurðsson, Alexander Veigar Þórarinsson og Gregg Ryder , þjálfari meistaraflokks.

Canon

Mynd: Þróttur

Þróttur hefur fengið miðjumanninn Alexander Veigar Þórarinsson í sínar raðir frá BÍ/Bolungarvík.

Alexander Veigar er fæddur 1988. Hann er uppalinn í Grindavík en hefur líka leikið fyrir Reyni Sandgerði, Fram og BÍ/Bolungarvík þar sem hann hefur verið undanfarin þrjú leiktímabil.
Hann er marksækinn miðjumaður og skoraði á þessu ári níu mörk í 22 leikjum í deild og bikar fyrir BÍ.

Þá hefur Ingólfur Sigurðsson einnig samið við Þrótt eftir að hafa verið á láni hjá félaginu frá Val síðari hlutann á síðasta tímabili. Ingólfur er fæddur árið 1993 en hann hefur einnig verið á mála hjá Heerenveen, Lyngby og KR á ferli sínum.

Hallur Hallsson fyrirliði Þróttar hefur einnig skrifað undir nýjan samning en hann hefur leikið allan sinn feril með félaginu.

,,Stjórn knattspyrnudeildar Þróttar fagnar því að hafa gengið frá samningi við þessa öflugu leikmenn,\" segir í fréttatilkynningu frá Þrótturum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.