Fotbolti.net
03.12.13 - 14:06
Daníel Freyr Jónsson

Hannes Þór til Sandnes Ulf (Staðfest)

Hannes Þór í búningi Sandnes Ulf.

Hannes Þór í búningi Sandnes Ulf.

Canon

Mynd: Getty Images

Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson er genginn í raðir norska úrvalsdeildarliðsins Sandnes Ulf og skrifaði hann í dag undir tveggja ára samning hjá félaginu.
Hannes Þór kemur til Sandnes frá KR, en þar hafði hann verið aðalmarkvörður frá því hann kom til félagsins frá Fram árið 2011.

Greint var frá því um helgina að Sandnes hefði náð samkomulagi við KR um kaupverð og því átti Hannes einungis eftir að ganga frá sínum samningi við norska félagið.

Hann spilaði 20 af 22 leikjum KR þegar liðið varð Íslandsmeistari í sumar, en einnig var hann fastamaður í marki Íslendinga í undankeppni HM.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.