Fotbolti.net
03.12.13 - 13:30
Magnús Már Einarsson

John Gregory tekur við Crawley (Staðfest)

John Gregory tekur við Crawley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

John Gregory er mættur aftur í enska boltann eftir hlé en hann hefur tekið við liði Crawley Town í C-deildinni.

Gregory var á sínum tíma stjóri hjá bæði Queens Park Rangers og Aston Villa.
Hann var rekinn frá QPR árið 2007 og hefur ekki starfað í Englandi síðan þá.

Undanfarin ár hefur Gregory þjálfað bæði í Kasakstan og Ísrael en hann mun nú reyna að snúa gengi Crawley við eftir átta leiki í röð án sigurs.

Þess má til gamans geta að James Hurst fyrrum leikmaður ÍBV og Vals er á mála hjá Crawley.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.