03.12.15 - 16:46
Magnús Már Einarsson
Jonathan Glenn áfram hjá Breiðabliki (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net

Mynd: Fótbolti.net
Framherjinn Jonathan Glenn hefur óvænt skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Breiðablik.
Glenn kom til Breiðabliks á láni frá ÍBV um mitt sumar og skoraði átta mörk í níu leikjum.
Eftir tímabilið virtist allt benda til þess að Glenn myndi fara í aðra deild á Norðurlöndunum en nú er ljóst að svo verður ekki.
„Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur enda var Glenn himnasending fyrir okkur síðasta sumar,\" segir á Blikar.is.
Glenn er 27 ára landsliðsmaður frá Trínidad og Tóbagó en hann gekk fyrst til liðs við ÍBV fyrir sumarið 2014.
Breiðablik hafnaði í öðru sæti Pepsi-deildarinnar í sumar og er á leið í Evrópukeppni næsta tímabil.