Sænsku félögin Norrköping og Elfsborg vilja fá Finn Tómas Pálmason, varnarmann KR, í sínar raðir samkvæmt frétt Expressen í Svíþóð í dag.
Bæði félög eru að skoða liðsstyrk fyrir næsta tímabil og hafa áhuga á að fá Finn.
Norrköping hefur góða reynslu af íslenskum leikmönnum en Arnór Sigurðsson sló í gegn hjá félaginu áður en hann var seldur til CSKA Moskvu og í ár hefur hinn 17 ára gamli Ísak Bergmann Jóhannesson farið á kostum með liðinu.
Finnur Tómas er 19 ára gamall en hann stimplaði sig inn í lið KR þegar liðið varð Íslandsmeistari í fyrra.
Finnur á 31 leik að baki í Pepsi Max-deildinni og þrjá leiki með U21 landsliði Íslands.
Athugasemdir