Fotbolti.net
03.12.20 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

West Ham í viðræðum við Moyes um nýjan samning

West Ham í viðræðum við Moyes um nýjan samning
Canon

Mynd: Getty Images

David Moyes er í viðræðum við West Ham um nýjan samning. Þetta herma heimildir <i>Sky Sports</i>.

Samkvæmt heimildum er West Ham þegar búið að bjóða Moyes nýjan samning en liðið hefur farið frábærlega af stað á tímabilinu, sérstaklega ef mið er tekið af fyrirfram erfiðri leikjadagskrá í upphafi leiktíðar.
West Ham er í fimmta sæti deildarinnar og vilja stjórnarmenn halda Moyes í starfi en núgildandi samningur hans rennur út eftir leiktíðina.

Moyes tók við af Manuel Pellegrini í desember í fyrra þegar liðið var stigi fyrir ofan fallsæti.

Þetta er önnur stjóratíð Moyes hjá Hömrunum en í fyrra skiptið fékk hann ekki áframhaldandi samning þrátt fyrir að halda liðinu í deildinni vorið 2018.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton10+1720
4Chelsea10+417
5Everton10+216
6Liverpool10+216
7Brentford10+715
8Bournemouth10+215
9Leeds10+214
10Tottenham10-112
11Newcastle10-312
12Aston Villa9-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Crystal Palace10-128
19Man Utd9-57
20Sunderland10-106
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.