Fotbolti.net
03.12.21 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England um helgina - Útileikir hjá toppliðunum og frumraun Rangnick

Ralf Rangnick stýrir Man Utd í fyrsta sinn

Ralf Rangnick stýrir Man Utd í fyrsta sinn

Canon

Mynd: Getty Images

Öll þrjú toppliðin í ensku úrvalsdeildinni spila á útivelli í 15. umferðinni og þá stýrir Ralf Rangnick sínum fyrsta leik með Manchester United.
Topplið Chelsea heimsækir West Ham í Lundúnarslag í hádegisleiknum. Þrír leikir eru spilaðir klukkan 15:00 en þar tekur Wolves á móti Liverpool.

Jóhann Berg Guðmundsson verður væntanlega í liði Burnley sem spilar við botnlið Newcastle. Southampton og Brighton eigast þá við í hörkuleik. Lokaleikur laugardagsins er leikur Watford og Manchester City.

Á sunnudag eru þrír leikir klukkan 14:00. Ralf Rangnick verður á hliðarlínunni er Manchester United spilar við Crystal Palace á Old Trafford. Leeds mætir Brentford og Norwich fer í heimsókn til Tottenham.

Aston Villa og Leicester eigast svo við í lokaleik helgarinnar.

Leikir helgarinnar:

Laugardagur:
12:30 West Ham - Chelsea
15:00 Newcastle - Burnley
15:00 Southampton - Brighton
15:00 Wolves - Liverpool
17:30 Watford - Man City

Sunnudagur:
14:00 Leeds - Brentford
14:00 Man Utd - Crystal Palace
14:00 Tottenham - Norwich
16:30 Aston Villa - Leicester
Chelsea spilar við West Ham

Chelsea spilar við West Ham

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.