Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mið 03. desember 2025 20:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Trent og Mbappe frábærir í sigri Real Madrid
Mynd: EPA
Athletic 0 - 3 Real Madrid
0-1 Kylian Mbappe ('7 )
0-2 Eduardo Camavinga ('42 )
0-3 Kylian Mbappe ('59 )

Real Madrid komst aftur á sigurbraut í spænsku deildinni þegar liðið lagði Athletic BIlbao í kvöld. Liðið hafði gert þrjú jafntefli í röð fyrir leik kvöldsins.

Kylian Mbappe kom liðinu yfir snemma leiks. Trent Alexander-Arnold átti langa sendingu fram völlinn á Mbappe sem lék á varnarmann Athletic og skoraði með góðu skoti úr D-boganum.

Undir lok fyrri hálfleiks átti Alexander-Arnold fyrirgjöf og Mbappe skallaði boltann fyrir markið á Eduardo Camavinga sem tvöfaldaði forystu Real Madrid. Mbappe innsiglaði sigur Real Madrid með marki eftir klukkutíma leik.

Real Madrid er í 2. sæti með 36 stig, stigi á eftir Barcelona. Athletic er í 8. sæti með 20 stig.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 26 21 1 4 71 26 +45 64
2 Real Madrid 26 19 3 4 54 22 +32 60
3 Atletico Madrid 26 15 6 5 43 23 +20 51
4 Villarreal 26 16 3 7 48 31 +17 51
5 Betis 26 11 10 5 42 32 +10 43
6 Celta 26 10 10 6 36 28 +8 40
7 Espanyol 26 10 6 10 33 39 -6 36
8 Real Sociedad 26 9 8 9 38 38 0 35
9 Athletic 26 10 5 11 30 36 -6 35
10 Osasuna 26 9 6 11 30 30 0 33
11 Getafe 26 9 5 12 21 29 -8 32
12 Sevilla 26 8 6 12 34 41 -7 30
13 Girona 26 7 9 10 27 42 -15 30
14 Valencia 26 7 8 11 27 39 -12 29
15 Vallecano 25 6 9 10 23 32 -9 27
16 Alaves 26 7 6 13 23 34 -11 27
17 Elche 26 5 11 10 34 39 -5 26
18 Mallorca 26 6 6 14 29 42 -13 24
19 Levante 26 5 6 15 28 44 -16 21
20 Oviedo 25 3 8 14 16 40 -24 17
Athugasemdir
banner
banner