Fotbolti.net
04.01.14 - 13:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Edy Reja tekinn við Lazio (Staðfest)

Edy Reja er nýr stjóri Lazio. Samt ekki því hann hefur stýrt liðinu áður, 2010-2012.

Edy Reja er nýr stjóri Lazio. Samt ekki því hann hefur stýrt liðinu áður, 2010-2012.

Canon

Mynd: Getty Images

Lazio staðfestir að Vladimir Petkovic hafi verið rekinn og Edy Reja ráðinn í þjálfarastöðu félagsins.

Petkovic tilkynnti það kringum jólahátíðarnar að hann myndi taka við svissneska landsliðinu eftir HM næsta sumar.

Það fannst stjórnarmönnum Lazio vera forsendubrestur svo reynt var að fá Petkovic til að segja upp starfi sínu.
Það gekk ekki og lýsti Petkovic því yfir fyrir helgi að hann væri enn þjálfari Lazio og því ríkti óvissuástand um hvort Petkovic eða Reja yrði á hliðarlínunni í næsta leik Lazio.

Þar af leiðandi ákvað félagið að reka Petkovic og íhugar kæru. Síðustu daga hafa lögmenn Lazio reynt að fá Petkovic til að segja upp samningnum en hann harðneitað og því var ekkert hægt að gera annað en að reka hann fyrir forsendubrest.

Petkovic þurfti að reka svo Reja kæmist á bekkinn fyrir leikinn gegn Inter á mánudaginn. Þjálfara þarf að skrá 24 tímum fyrir leik.

Talið er líklegt að Petkovic kæri Lazio fyrir að reka sig, enda hefur hann áður fært rök fyrir því að enginn forsendubrestur hafi í raun átt sér stað.

,,Petkovic tók fregnunum af kærunni illa. Hann var hissa og svekktur,\" stendur í yfirlýsingu frá Paco D\'Onofrio, lögmanni Petkovic.

,,Eftir að hafa skrifað undir samning við svissneska landsliðið 23. desember var það hans siðferðislega ákvörðun að láta Claudio Lotito, forseta Lazio, vita af því áður en það yrði gert opinbert.

,,Það eru engin lög sem segja til um að Petkovic hafi átt að láta vita af nýjum samning næsta sumar og hann vildi klára tímabilið með Lazio enda hefur hann lagt mikinn vinnutíma í félagið.\"

Heimild: Football-Italia

Vladimir Petkovic er ósáttur með viðbrögð Claudio Lotito.

Vladimir Petkovic er ósáttur með viðbrögð Claudio Lotito.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.