Fotbolti.net
04.01.14 - 18:36
Elvar Geir Magnússon

Lewandowski gerði fimm ára samning við Bayern (Staðfest)

Lewandowski í leik með pólska landsliðinu.

Lewandowski í leik með pólska landsliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Bayern München hefur staðfest það á heimasíðu sinni að búið sé að skrifa undir samning við pólska sóknarmanninn Robert Lewandowski.

Gekkst leikmaðurinn undir læknisskoðun í morgun og skrifaði í kjölfarið undir samning til fimm ára.
Samningurinn tekur gildi 1. júlí í sumar og mun Lewandowski klára yfirstandandi tímabil með Borussia Dortmund. Samningur hans við Dortmund rennur út eftir tímabilið og fer hann á frjálsri sölu til Bæjara.

Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern, segir gríðarlega ánægju með að félagið hafi tryggt sér þjónustu Lewandowski enda sé um að ræða einn besta sóknarmann í heimi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.