04.01.16 - 19:10
Elvar Geir Magnússon
Benítez rekinn og Zidane ráðinn hjá Real (Staðfest)

Zidane er orðinn þjálfari Real Madrid.

Mynd: Getty Images

Zidane er orðinn þjálfari Real Madrid.

Mynd: Getty Images
Frakkinn Zinedine Zidane hefur verið ráðinn nýr þjálfari spænska stórliðsins Real Madrid en þetta var staðfest á fréttamannafundi rétt í þessu. Rafa Benítez hefur verið rekinn eftir aðeins sjö mánuði í starfi.
„Hann er einn besti fótboltamaður sögunnar. Zidane, frá og með þessari stundu ert þú þjálfari Real Madrid,\" sagði Florentino Perez, forseti Real, á fréttamannafundinum. Ekki er langt síðan haldinn var fréttamannafundur þar sem lýst var yfir trausti á Benítez.
Real er í þriðja sæti spænsku deildarinnar en liðið gerði 2-2 jafntefli við Valencia í gær og gerðu þau úrslit útslagið. Undir stjórn Benítez vann Real 11 af 18 deildarleikjum sínum, tapaði þremur.
„Ég mun gera allt sem ég get til að ná fram öllu því besta fyrir félagið,\" sagði Zidane á fundinum. „Í dag er mikilvægur dagur fyrir mig. Ég komst að því um leið og ég kom hingað sem leikmaður hversu magnað félagið er. Við höfum bestu stuðningsmenn í heimi og besta félag í heimi. Ég geri allt til að vinna.\"
Zidane var leikmaður Real 2001-2006 og vann bæði spænska meistaratitilinn og Meistaradeildina með liðinu. Hann var þjálfari varaliðs Real en hefur nú verið hækkaður um tign.