04.01.16 - 18:01
Elvar Geir Magnússon
Boateng til AC Milan (Staðfest)

Boateng er kominn aftur til AC Milan

Mynd: Getty Images

Boateng er kominn aftur til AC Milan

Mynd: Getty Images
AC Milan hefur formlega gengið frá samningi við miðjumanninn Kevin-Prince Boateng frá Schalke í Þýskalandi.
Þessi 28 ára landsliðsmaður frá Gana hefur æft með Milan síðan í september svo þessar fréttir koma síður en svo á óvart.
Þessi 28 ára landsliðsmaður frá Gana hefur æft með Milan síðan í september svo þessar fréttir koma síður en svo á óvart.
Boateng fær nú leikheimild með AC Milan en hann lék með liðinu 2010-13 og hjálpaði því að vinna ítalska meistaratitilinn 2011.
Hann gekk í raðir Schalke 2013 en fyrr á árinu hafði hann afplánað agabann hjá Milan vegna slæmrar hegðunar. Hann fær nú annað tækifæri.
AC Milan er í áttunda sæti ítölsku A-deildarinnar.
Hann gekk í raðir Schalke 2013 en fyrr á árinu hafði hann afplánað agabann hjá Milan vegna slæmrar hegðunar. Hann fær nú annað tækifæri.
AC Milan er í áttunda sæti ítölsku A-deildarinnar.
