04.01.16 - 17:44
Elvar Geir Magnússon
Demarai Gray til Leicester (Staðfest)

Demarai Gray.

Mynd: Getty Images

Demarai Gray.

Mynd: Getty Images
Leicester hefur fengið hinn 19 ára Demarai Gray frá Birmingham í Championship-deildinni.
Gray er vængmaður sem hefur skrifað undir fjögurra og hálfs árs samning hjá Leicester og verður væntanlega í leikmannahópi Leicester sem mætir Tottenham í þriðju umferð FA-bikarsins næsta sunnudag.
Á tímabilinu hefur Gray spilað 21 leik og skorað eitt mark. Á síðasta tímabili skoraði hann sex mörk í 41 leik fyrir Birmingham.
„Það hefur verið draumur minn að spila í ensku úrvalsdeildinni síðan ég byrjaði að æfa fótbolta. Ég er mjög ánægður með að hafa gengið í raðir Leicester. Þetta er frábært félag með góðar aðstæður og hentugur staður fyrir mig að bæta mig,\" segir Gray.
Leicester fékk að kynnast gæðunum hjá Gray þegar hann skoraði magnað mark fyrir Birmingham gegn Leicester á undirbúningstímabilinu.

#lcfc found out first hand about @Demarai7’s talents in pre-season. Check out this stunner… #GrayLCFC
https://t.co/RltNsQd723
— Leicester City (@LCFC) January 4, 2016