Fotbolti.net
04.01.22 - 13:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Agla María í Häcken (Staðfest)

Agla María í gulu treyjunni á Kópavogsvelli

Agla María í gulu treyjunni á Kópavogsvelli

Canon

Mynd: Häcken

Kvennaboltinn
Agla María Albertsdóttir er genginn í raðir BK Häcken í Svíþjóð. Häcken kaupir Öglu Maríu frá Breiðabliki þar sem hún var samningsbundinn uppeldisfélaginu.

Agla María semur til þriggja ára við þetta næsbesta lið Svíþjóðar á síðasta tímabili. Hún verður liðsfélagi Diljár Ýrar Zomers sem gekk í raðir félagsins fyrir síðasta tímabil.
„Það var mikill áhugi erlendis frá að fá Öglu Maríu til liðs við sig, enda hefur hún sannað sig sem ein albesta knattspyrnukona landsins síðustu ár. Að lokum kom gott tilboð frá Häcken og Öglu Maríu leist sömuleiðis vel á liðið," segir í frétt á blikar.is.

Agla María er 22 ára og spilar oftast sem kantmaður en spilaði þó á köflum sem fremsti maður í liði Breiðabliks í Meistaradeildinni í haust.

„Ég er búin að fá þessa spurningu ansi oft... ég mun einhvern tímann gera það; þetta kemur allt í ljós. Það eru alltaf einhver tilboð sem maður fær. Þetta kemur í ljós fljótlega," sagði Agla María spurð út í mögulega atvinnumennsku á fréttamannafundi íslenska landsliðsins í nóvember.

Agla María er byrjunarliðsleikmaður í íslenska landsliðinu, hefur spilað 42 landsleiki og skorað þrjú mörk. Hún skoraði tólf mörk í átján leikjum með Breiðabliki í sumar og varð bikarmeistari með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.