04.01.22 - 19:52
Victor Pálsson
Clement ráðinn stjóri Mónakó (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Mónakó í frönsku úrvalsdeildinni er búið að ráða til sín þjálfara eftir brottrekstur Niko Kovac á dögunum.
Kovac fékk þær fréttir á fimmtudag að hann væri á förum en liðið situr í sjötta sæti deildarinnar eftir 19 leiki.
Gengi Mónakó var fínt á síðustu leiktíð en liðið hafnaði í þriðja sæti deildarinnar og byrjaði Króatinn því við stjórnvölin í vetur.
Nú hefur Philippe Clement verið ráðinn stjóri Mónakó en hann hefur gert mjög góða hluti í heimalandinu, Belgíu.
Clement gerði Club Brugge að meisturum tvö ár í röð og vann fyrir það deildina með Genk.