Fotbolti.net
04.01.22 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Daryl Dike til WBA (Staðfest)

Dike í búningi Barnsley

Dike í búningi Barnsley

Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur fest kaup á hinum 21 árs gamla Daryl Dike frá Orlando City.
Dike er landsliðsmaður Bandaríkjana en hann var á láni hjá Barnsley í Championship deildinni seinni hlutann á síðasta tímabili. Hann lék 19 leiki og skoraði 9 mörk en hann er framherji.

Valerien Ismael stjóri WBA var einmitt stjóri Barnsley á síðustu leiktíð.

Hann gerir fjögurra ára samning við félagið en kaupverðir er óuppgefið.

WBA er í 4. sæti Championship deildarinnar sjö stigum á eftir toppliði Bournemouth.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.