Fotbolti.net
04.01.22 - 12:43
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Insigne til Toronto í sumar (Staðfest)

Lorenzo Insigne.

Lorenzo Insigne.

Canon

Mynd: EPA

Sky Sport Italia hefur staðfest að Loronezo Insigne hafi náð samkomulagi við Toronto og MLS-félagið muni formlega tilkynna um samkomulagið í dag.

Insigne, sem er þrítugur, fer til Kanada í sumar en þá rennur samningur hans við Napoli út.
Insigne hafnaði tilboði frá Napoli um nýjan samning, félagið bauð honum 3,5 milljónir evra í árslaun en hann er með 5 milljónir evra í núgildandi samning.

Hjá Toronto mun hann fá um 5,7 milljónir evra eftir skatt.

Insigne er uppalinn hjá Napoli og hefur verið hjá félaginu nánast allan sinn feril og skorað 114 mörk í 415 leikjum.

Insigne hefur tvívegis orðið bikarmeistari með Napoli og þá varð hann Evrópumeistari með ítalska landsliðinu á liðnu ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.