Fotbolti.net
04.01.22 - 12:52
Elvar Geir Magnússon

Ísak gerði þriggja ára samning við Breiðablik (Staðfest)

Ísak Snær Þorvaldsson.

Ísak Snær Þorvaldsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik hefur staðfest að miðjumaðurinn Ísak Snær Þorvaldsson sé genginn í raðir félagsins en hann gerði þriggja ára samning. Ísak verður 21 árs í maí.
Hann er alinn upp í Aftureldingu en fór ungur að árum í atvinnumennsku til Norwich í Englandi.

Undanfarin tvö tímabil hefur hann hins vegar spilað með Skagamönnum sem lánsmaður í efstu deild. Hann á að baki 23 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.

„Ísak Snær hefur losað sig undan samningi við Kanarífuglana og gat því samið við okkur. Við bjóðum Ísak Snæ hjartanlega velkominn í Kópavoginn!" segir á blikar.is.

Ísak lék með Breiðabliki í Bose-bikarnum í vetur en viðræður hafa staðið yfir í nokkurn tíma.

Breiðablik:

Komnir
Ísak Snær Þorvaldsson frá Norwich
Dagur Dan Þórhallsson frá Noregi
Pétur Theódór Árnason frá Gróttu
Juan Camilo Pérez frá Venesúela
Anton Logi Lúðvíksson frá Aftureldingu (var á láni)
Benedikt V. Warén frá Vestra (var á láni)
Stefán Ingi Sigurðarson frá ÍBV (var á láni)
Eiríkur Þorsteinsson Blöndal frá Þrótti R. (var á láni)
Aron Kári Aðalsteinsson frá Fram (var á láni)
Ýmir Halldórsson frá Aftureldingu (var á láni)

Farnir
Davíð Örn Atlason til Víkings R.
Thomas Mikkelsen til Danmerkur
Róbert Orri Þorkelsson til Kanada (fór um mitt sumar)
Ólafur Guðmundsson til FH (fór um mitt sumar)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.