Fotbolti.net
04.01.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Íslendingarnir í Venezia fá liðsfélaga frá Bayern (Staðfest)

Michaël Cuisance.

Michaël Cuisance.

Canon

Mynd: EPA

Venezia, sem er mikið Íslendingafélag, hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Michaël Cuisance. Hann kemur til ítalska félagsins frá þýska stórveldinu Bayern München.

Cuisance skrifar undir samning við Venezia sem gildir út tímabilið 2025.
Bayern keypti Cuisance frá Borussia Mönchengladbach árið 2019, en honum tókst ekki að brjóta sér leið inn í ógnarsterkt lið Bayern. Hann spilaði alls 13 leiki fyrir aðalliðið.

Í fyrra lék þessi 22 ára gamli leikmaður á láni hjá Marseille í Frakklandi, þar sem hann kom við sögu í 30 leikjum í öllum keppnum.

Núna er hann orðinn leikmaður Venezia. Hjá félaginu eru alls sex Íslendingar. Arnór Sigurðsson og Bjarki Steinn Bjarkason eru í aðalliðinu og í unglingaliðum félagsins eru Hilmir Rafn Mikaelsson, Jakob Franz Pálsson og Kristófer Jónsson. Óttar Magnússon Karlsson er leikmaður félagsins en er núna í láni hjá Siena í Serie C á Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.