04.01.22 - 15:07
Elvar Geir Magnússon
Nathan Patterson til Everton (Staðfest)

Nathan Patterson í treyju Everton.

Mynd: Getty Images

Nathan Patterson í treyju Everton.

Mynd: Getty Images
Hægri bakvörðurinn Nathan Patterson er kominn til Everton frá Rangers í Glasgow. Hann er keyptur á 16 milljónir punda og skrifaði undir samning til 2027.
Everton, sem er í fimmtánda sæti úrvalsdeildarinnar, lagði mikla áherslu á að fá Patterson og Rangers hafnaði tveimur tilboðum í leikmanninn síðasta sumar.

Patterson er skoskur landsliðsmaður og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í sigri gegn Moldóvu í október.
Patterson er annar bakvörðurinn sem Everton fær í þessum janúarglugga en á fyrsta degi ársins var úkraínski vinstri bakvörðurinn Mykolenko kynntur til leiks.
Patterson er tvítugur, 2001 módel, en hér að neðan má sjá viðtal við hann sem tekið var eftir undirskriftina. Þar segir hann að það hafi verið auðveld ákvörðun að ganga í raðir félagsins.

Our second January arrival ✍️
— Everton (@Everton) January 4, 2022
Welcome, Nathan! 🔵 pic.twitter.com/lKflKD4EQJ