04.01.22 - 18:39
Victor Pálsson
Watford kaupir vinstri bakvörð frá Nice (Staðfest)

Mynd: Watford

Mynd: Watford
Watford hefur samið við leikmanninn Hassane Kamara en hann skrifar undir samning við félagið til ársins 2025.
Þetta er fyrsti leikmaðurinn sem Watford fær í janúarglugganum og sá fyrsti sem Claudio Ranieri fær inn.
Watford borgar fjórar milljónir punda fyrir Kamara sem er vinsti bakvörður og var á mála hjá Nice í Frakklandi.
Kamara er einnig landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar og mun reyna að hjálpa Watford að forðast fall.
Kamara spilaði 11 leiki fyrir Nice á tímabilinu og fer ekki með sínu landsliðinu á Afríkukeppnina í janúar.
Leikmaðurinn er 27 ára gamall og getur einnig leyst stöðu miðjumanns.

Signed. Sealed. Delivered. ✅
— Watford Football Club (@WatfordFC) January 4, 2022
Hassane Kamara is a Hornet! 🇨🇮🐝 pic.twitter.com/tujW67yYbc