Fotbolti.net
04.02.13 - 06:00
Fótbolti.net

Anna Birna í Þrótt (Staðfest)

Anna Birna í leik með Breiðablik gegn Þrótti

Anna Birna í leik með Breiðablik gegn Þrótti

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Þróttarar hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi átök í Pepsi-deildinni en varnarmaðurinn sterki, Anna Birna Þorvarðardóttir, hefur gert tveggja ára samning við félagið.
Anna Birna kemur frá Breiðabliki þar sem hún er uppalin. Hún hefur leikið 92 meistaraflokksleiki í efstu deild og bikarkeppni fyrir hönd Breiðabliks en hún var á láni hjá Fram síðastliðið sumar og lék þá 9 leiki í 1. deildinni. Þar að auki á Anna Birna fjóra U19 landsleiki að baki.

Á heimasíðu Þróttar kemur fram að félagið bindi miklar vonir við komu Önnu Birnu og vænti þess að reynsla hennar muni reynast nýliðunum vel á komandi tímabili.

Heimild: Heimasíða Þróttar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.