Fotbolti.net
04.02.13 - 09:37
Magnús Már Einarsson

Gunnhildur Yrsa til Arna-Bjornar (Staðfest)

Gunnhildur Yrsa til Arna-Bjornar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, hefur gengið til liðs við Arna-Bjornar en þetta kemur fram á 433.is.
Arna-Bjornar leikur í norsku úrvalsdeildinni en liðið endaði í þriðja sæti þar í fyrra.

Hin 24 ára gamla Gunnhildur Yrsa hefur verið lykilmaður í liði Stjörnunnar í mörg ár.

Gunnhildur Yrsa er uppalin hjá félaginu en hún hefur skorað 38 mörk í 144 deildar og bikarleikjum með Garðabæjarliðinu.

Þá á Gunnhildur Yrsa einnig sjö landsleiki að baki með A-landsliði Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.