Fotbolti.net
04.02.14 - 16:08
Magnús Már Einarsson

Brandon Scott í Leikni R. (Staðfest)

Brandon Scott í Leikni R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bandaríski vinstri bakvörðurinn Brandon Scott hefur gert eins árs samning við Leikni R.

Scott var á reynslu hjá dögunum og lék meðal annars æfingaleik með liðinu gegn Keflavík.
,,Þjálfaraliðið er í hæsta gæðaflokki og liðið er mjög gott og hæfileikaríkt,\" sagði Brandon í viðtali á heimasíðu Soccerviza.

,,Við höfum fulla trúa á að okkar tími sé kominn á að fara upp. Persónulegt markmið mitt fyrir tímabilið er mjög einfalt, ég vil byrja alla leiki og spila vel.\"

Bandarískur sóknarmaður lék með Leikni í leiknum gegn Keflavík á dögunum og líkur eru á að hann semji einnig við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.