04.02.14 - 19:44
Magnús Már Einarsson
Laudrup rekinn frá Swansea (Staðfest)

Michael Laudrup.

Mynd: Getty Images

Michael Laudrup.

Mynd: Getty Images
Michael Laudrup, stjóri Swansea, hefur fengið að taka pokann sinn. Óvissa hefur verið í kringum framtíð Laudrup undanfarnar vikur og nú hefur honum verið sagt upp.
,,Þetta var mjög erfið ákvörðun en við teljum þetta vera best fyrir Swansea City og stuðningsmenn okkar,\" sagði Huw Jenkins formaður Swansea.
Garry Monk mun taka við Swansea til að byrja með en Alan Curtis mun starfa við hlið hans.
Laudrup tók við Swansea af Brendan Rodgers sumarið 2012 og undir hans stjórn vann liðið enska deildabikarinn á síðasta tímabili.
Swansea tapaði 2-0 gegn West Ham um helgina en það var sjötta tap liðsins í síðustu átta leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Liðið er núna í tólfta sæti deildarinnar með 24 stig, tveimur stigum frá fallsvæðinu.