Fotbolti.net
04.02.14 - 10:24
Magnús Már Einarsson

Mágur Luis Suarez í KR (Staðfest)

Mágur Luis Suarez í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða KR

Gonzalo Balbi er á leið í KR eftir að hafa átt stutt stopp hjá KV. Þetta staðfesti Baldur Stefánsson varaformaður knattspyrnudeildar KR í samtali við Fótbolta.net í dag.

Balbi er mágur Luis Suarez leikmanns Liverpool en hann dvaldi hér á landi síðastliðið sumar.

Þá æfði hann með KR og virtist ætla að ganga til liðs við Íslandsmeistarana í júlí en á endanum náðist ekki að ganga frá leikheimild fyrir hann.
Ástæðan var sú að Balbi hefur leikið með félögum í neðri deildunum á Spáni og þau kröfðust þess að fá háar uppeldisbætur ef hann myndi semja við KR. Nú er búið að ganga frá samningum þess efnis.

,,Við hefðum viljað fá hann í fyrrasumar en þá náðust ekki samningar með uppeldisbætur. Þessi lið slökuðu síðan á klónni í vetur og það náðust samningar sem allir eru sáttir við,\" sagði Baldur við Fótbolta.net í dag.

,,Við bindum miklar vonir við þennan strák, hann er ungur og efnilegur.\"

Balbi skipti á dögunum í KV en þar sem hann samdi ekki við félagið þurfti ekki að greiða neinar uppeldisbætur þar. Balbi þarf aftur á móti að gera samning til að mega leika með KR í Pepsi-deildinni og hann mun nú gera það eftir að gengið var frá samningum um uppeldisbætur við spænsku félögin.

Balbi er 21 árs bakvörður en hann hefur einnig leikið á kanti og miðju. Hann lék einungis einn leik með KV en þá skoraði hann tvívegis í 3-2 sigri liðsins á Víkingi R. í Reykjavíkurmótinu.
Mágur Luis Suarez í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.