Fotbolti.net
04.02.20 - 15:30
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Longo í stað Mazzarri hjá Torino (Staðfest)

Walter Mazzarri var rekinn.

Walter Mazzarri var rekinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Þjálfaraskipti hafa orðið hjá Torino. Walter Mazzarri er horfinn á braut og Moreno Longo er tekinn við og skrifaði undir samning út tímabilið.

Longo er fyrrum leikmaður Torino og hefur verið að gera flotta hluti í þjálfun yngri flokka hjá félaginu.
Mazzarri var rekinn eftir slæm úrslit að undanförnu, 7-0 tap gegn Atalanta og 4-0 tap gegn Lecce.

Hann tók við starfinu í janúar 2018 og leiddi liðið í sjöunda sæti á síðasta tímabili.

Torino er nú í tólfta sæti ítölsku A-deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.