04.02.20 - 15:48
Magnús Már Einarsson
Mikkel Qvist í KA á láni (Staðfest) - 203 cm á hæð

Mikkel Qvist.

Mynd: KA

Mikkel Qvist.

Mynd: KA
KA hefur fengið varnarmanninn Mikkel Qvist á láni frá Horens í dönsku úrvalsdeildinni. Lánssamningurinn gildir út ágúst.
„Það er ljóst að koma Qvist er gífurlega jákvæð fyrir KA í baráttunni í Pepsi Max deildinni í sumar en hann er 26 ára gamall varnarmaður og er 203 cm á hæð," segir á heimasíðu KA en Qvist er því hávaxnasti leikmaður Pepsi Max-deildarinnar.
„Hann er öflugur í loftinu auk þess sem hann er líkamlega sterkur og getur kastað boltanum ansi langt í innköstum."
„Hann hefur leikið alls 81 leik fyrir Horsens í efstu deild og bikar og ætlumst við til mikils af honum í sumar."
KA hefur verið í leit að varnarmanni undanfarnar vikur en Callum Williams er hættur í fótbolta og Torfi Tímóteus Gunnarsson er farinn aftur í Fjölni eftir að hafa verið á láni í fyrrasumar.