04.02.21 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spennt að sjá hvað Katrín Ásbjörns gerir

Katrín Ásbjörnsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Katrín Ásbjörnsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Um miðjan desember var greint frá því að Katrín Ásbjörnsdóttir myndi yfirgefa herbúðir KR fyrir komandi tímabil. Katrín, sem er 28 ára gömul, sagði á þeim tímapunkti við mbl.is að framhaldið hjá sér væri óljóst.
Lestu meira um málið:
Katrín Ásbjörns fer frá KR (Staðfest) - „Framhaldið er óljóst" (18. des)

Andrea Mist Pálsdóttir var gestur í Heimavellinum, sem þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir stjórna, og var hún spurð hvort stefndi áfram í tveggja hesta kapphlaup um titilinn, milli Breiðabliks og Vals líkt og undanfarin ár.
„Mér finnst það kannski of snemmt að segja til um það. Mér finnst lið vera ennþá að næla sér í leikmenn. Lið eins og Fylkir eru með mjög flottan hóp og gæti verið að slást í toppbaráttunni. Það eru lið sem eiga ennþá eftir að fá inn útlendinga og það eru ennþá Íslendingar sem eru spurningarmerki. Eins og Katrín Ásbjörns til dæmis. Ég vona að það verði ekki bara tvö lið," sagi Andrea. Þess má geta að Andrea og Katrín léku saman hjá Þór/KA árið 2014.
Hefuru heyrt eitthvað, fyrst þú nefnir Katríni Ásbjörns - Ertu búin að heyra eitthvað slúður?
„Nei nefnilega ekki, ég velti því fyrir mér hvað hún ætlar að gera, það kemur í ljós."
Ertu með eitthvað slúður að lokum?
„Ég hlakka til að heyra slúður hvað Katrín Ásbjörns ætlar að gera, ég er spennt að sjá hvað hún gerir."
Hlusta má á Heimavöllinn hér neðst í fréttinni.
Meira úr viðtalinu við Andreu:
„Eitthvað í kollinum sem sagði að ég ætti frekar að fara í stórveldi hér heima"
Topp fimm "gullfætur" úr efstu deild kvenna