04.02.22 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Frá Gróttu í efstu deild í Svíþjóð (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Maggie Smither gekk í raðir Gróttu fyrir síðasta tímabil. Maggie er bandarískur markvörður sem varði mark Gróttu í sautján af átján leikjum liðsins síðasta sumar.
Hún verður ekki áfram hjá liðinu en það féll niður í 2. deild eftir svekkjandi lokaumferð.
Hún verður ekki áfram hjá liðinu en það féll niður í 2. deild eftir svekkjandi lokaumferð.
Maggie hefur fengið félagaskipti til Svíþjóðar og er gengin í raðir Brommapojkarna sem spilar í Allsvenskan (efstu deild).
Brommapojkarna endaði í þriðja sæti Eliettan í fyrra, það er verið að fjölga í sænsku deildinni og því fóru þrjú lið upp.
Brommapojkarna endaði í þriðja sæti Eliettan í fyrra, það er verið að fjölga í sænsku deildinni og því fóru þrjú lið upp.
