04.02.22 - 11:10
Elvar Geir Magnússon
Pulgar lánaður til Galatasaray (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fiorentina hefur lánað miðjumanninn Erick Pulgar til Galatasaray í Tyrklandi.
Pulgar er landsliðsmaður Síle en lánssamningurinn er ekki með klásúlu um möguleg kaup og er til 30. júní.
Pulgar lék aðeins átta leiki í deild og bikar fyrir Fiorentina á þessu tímabili.
Meiðsli og Covid smit settu strik í reikninginn og hann hefur færst aftar í goggunarröðinni í Flórens og samþykkti að vera lánaður til Tyrklands.
Þessi 28 ára leikmaður hefur skorað fjögur mörk í 37 landsleikjum fyrir Síle. Galatasaray er í fimmtánda sæti tyrknesku deildarinnar.

✍️ Welcome to #Galatasaray, Erick Pulgar! 💪pic.twitter.com/fSUdlu6pN5
— Galatasaray EN (@Galatasaray) February 3, 2022