04.02.22 - 12:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þorsteinn Aron í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Fulham

Mynd: Fulham
Þorsteinn Aron Antonsson (2004) er genginn í raðir Stjörnunnar frá enska félaginu Fulham. Hann kemur á eins árs lánssamningi.
Þorsteinn Aron steig sín fyrstu skref í meistaraflokki Selfoss þar sem hann stóð sig vel, var valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar 2020 og skrifaði undir samning við Fulham á Englandi í kjölfarið.

Þorsteinn hefur spilað hefur spilað fjóra U17 landsleiki og tvo U19 landsleiki fyrir Ísland. Hann spilaði í hjarta varnarinnar þegar hann spilaði með Selfossi.
Þorsteinn æfði með Stjörnunni í desember og er nú búið að staðfesta skiptin.
„Hann æfði með okkur í dag og verður gaman að fá hann inn í okkar flotta hóp. Það er mikið af ungum leikmönnum í hópnum," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar, í viðtali við fótbolta.net í desember.